All jobsDeloitte● Verified live

Við erum að ráða í áhættu-og gæðadeild Deloitte

Kópavogur, Kópavogsbær, IS Full-time Posted Oct 8, 2026● Apply link verified live

Deloitte er leiðandi þjónustuveitandi á sviði endurskoðunar og reikningsskila, upplýsingatækniráðgjafar, fjármálaráðgjafar, áhætturáðgjafar, skatta– og lögfræðiráðgjafar og tengdrar þjónustu. Alþjóðlegt net aðildarfélaga okkar og tengdra félaga spannar meira en 150 lönd og landsvæði (sameiginlega vísað til sem „félög Deloitte"). Hjá Deloitte starfa um 460.000 sérfræðingar sem stefna saman að því að veita ávallt framúrskarandi þjónustu þar af eru 320 á Íslandi.

Áhættu- og gæðadeild Deloitte (QRS) leitar að jákvæðum, drífandi, sjálfstæðum og metnaðarfullum liðsfélaga. 

Starfið felur í sér að taka þátt í þeim fjölbreyttu verkefnum sem eru unnin innan deildarinnar. Starfið hentar vel þeim sem hafa áhuga á gæðamálum, bestun ferla og aukinni skilvirkni. Ekki er gerð krafa um reynslu af gæðamálum, við kennum á starfið. 

Starfið hentar vel fólki sem er nýkomið úr námi.  

 

Helstu verkefni meðal annarra:  

  • Þátttaka í innleiðingu á verkferlum (verklagsreglum og stöðlum ) 

  • Skráning í gæðakerfi og áhættumat 

  • Eftirlit með reglufylgni og áhættumati   

  • Samþykki viðskiptavina og hlýtni við lög 

  • Mikil samskipti við önnur svið innan Deloitte 

  • Rýni ársreikninga og annarra gagna 

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s. viðskiptafræði og/eða önnur menntun 

  • Mjög góð samskiptafærni og vilji til samvinnu og að stuðla að góðum starfsanda   

  • Fagmennska, sjálfstæð og vönduð vinnubrögð mikilvæg  

  • Áhugi á að læra nýja hluti í tengslum við gæða- og reglufylgni  

  • Gagnrýnin hugsun og greiningarhæfni mikilvæg  

  • Gott vald á íslensku og ensku, bæði töluðu og rituðu máli skilyrði  

Um teymið   

Áhættu- og gæðadeild starfar þvert á önnur svið Deloitte og er þeim innan handar með ýmis konar mál og fylgni við lög og reglur. Við vinnum saman sem ein heild og störfum mikið með áhættu- og gæðadeildum annarra Norðurlanda.   

Starfsþróun   

Það er mikilvægt að muna að á fyrsta degi kann enginn allt og við trúum því að það sé ávallt rými til að læra og bæta við sig þekkingu. Þú lærir mikið af þeim fjölbreyttu verkefnum sem unnin eru í teyminu og færð góðan stuðning til vaxtar og þróunar í starfi.   

Að auki bjóðum við upp á:  

  • Frábært mötuneyti með niðurgreiddum morgunmat og hádegismat 

  • Veglegan líkamsræktarstyrk, virkt starfsmannafélag og gott félagslíf 

  • Fyrirmyndar aðbúnað starfsfólks höfuðstöðvum fyrirtækisins á Dalvegi 

  • Sjálfboðastarf til áhrifa – launaður dagur til að sinna sjálfbærniverkefnum 

  • Fjölbreytt áhugamál samstarfsfélaga þvert á félagið t.d. hlaupahópur, golfklúbbur, fótbolti í hádeginu, og leikjaherbergi svo eitthvað sé nefnt 

Við hlökkum til að fá umsóknina þína. Nánari upplýsingar um starfið veita Pétur Hansson (pehansson@deloitte.is) og Helen Breiðfjörð (hbreidfjord@deloitte.is). 

Tekið er á móti umsóknum (ferilskrá og kynningarbréfi) til og með 18. október 2026

 

Vilt þú hafa áhrif? Hjá Deloitte skiptir þitt framlag máli því saman, sem ein heild, vinnum við að því að hafa áhrif á viðskiptavini, samstarfsfélaga og samfélag. Þú færð tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum þvert á svið, starfsstöðvar og lönd, auka hæfni þína og færni og hafa góðan stuðning til vaxtar og þróunar í starfi. 

via jobs.smartrecruiters.com

Related jobs

© 2026 NoGigiddy · Commission-based platform

We like the way you work it·nogigiddy·Gotta bag it up·nogigiddy·
We like the way you work it·nogigiddy·Gotta bag it up·nogigiddy·